Allt að verða vitlaust.. .
Búðin var full af fólki og Dagbjört að afgreiða og mamma fann jarðskjálftan á undan öllum og hélt að hún væri að verða geðveik. Hún fann bara allt hristast, leit upp og allt fólkið virtist ekki finna fyrir neinu. Þá gargaði mamma "Finnið þið ekki fyrir þessu!!" og þá fyrst fór allt að hristast. Fuglarnir flugu um eins og vitlausir og mömmu var ekki sama um fiskabúrin á tímabili því þau hristust svo mikið! 
Mamma á líka afmæli í dag og er 20 ára sem er ekkert smááá mikið!!
Mamma fékk rosalega flotta Olympus myndavél frá Ömmu, Valda og Gústaf í afmælisgjöf og við erum búin að komast að því að ég verð að vera miðpunktur athyglinnar því að um leið og einhver dregur upp myndavél, planta ég mér fyrir framan viðkomandi og stilli mér upp sitjandi
Algjört nörd!!Það verður síðan veisla í dag og svo að ég verð eins handsome as ever þá keypti mamma jakkaföt á mig. Ég verð sko klárlega lang flottastur í þessari veislu!!
En núna þarf mamma að fara að taka til fyrir veisluna, svo þarf að viðra mig og svo þarf hún að fara í sturtu,
Kv. Techno
Over
and out!










Við mamma erum orðin svo þeytt á þessu læknaveseni að það er ekki eðlilegt, en það gengur náttúrulega ekki að hafa feldinn svona ljótann án þess að vita afhverju. 


$$ 





